Enskukroppar

Þetta er nú meiri endemis lágdeyðan! Hysjum upp um okkur buxurnar og látum í okkur heyra!!!

fimmtudagur, júní 29, 2006

takk takk takk

takk fyrir allar kveðjurnar, stelpur mínar...það var nú ekki ætlunin að stela senunni hér á þessari síðu, en ég get bara ekki að því gert hvað ég dreg að mér athyglina!!! En mig langar að segja ykkur svolítið...ég hitti eina góða vinkonu okkar í kvöld. Sú sem á heiðurinn að lykilorðinu okkar!!! Slúttið hjá sumarskóla FB var í kvöld og allir kennararnir sátu saman að snæðingi, smá ræður og dæmi, sem er ekki í frásögur færandi, nema hvað það vindur sér að mér kona og segir "hæ, Íris, manstu ekki eftir mér?" Ég verð að viðurkenna að ég kannaðist við hana en áttaði mig ekki á hver hún var. "Ég er Imelda, sem var með þér í enskunni". Hehe...ég bara alveg...hehe...já...alveg rétt...hehe...ég bara þekkti þig ekki.... svo áttum við smá samtal...stutt og laggott!!! Þá er maðurinn hennar að kenna við FB! Stundum er þetta land bara allt of lítið...

|

miðvikudagur, júní 28, 2006

Til hamingju með afmælið Íris okkar.

Eigðu góðan dag og njóttu hans í botn!

Bestu kveðjur,

AE

|

laugardagur, júní 10, 2006

Innilegustu hamingjuóskir!

Elsku Íris og Kalli, til hamingju með daginn í dag.

Megi Guð og gæfan fylgja ykkur um ókomna framtíð ásamt ást, heppni og gleði.

Bestu kveðjur,

AE og KJ

|

Hæhæ
Er ekki Íris að gifta sig í dag?
Til hamingju elsku Íris mín, ef svo er, og vonandi eigið þið góðan dag og hafið það fínt.
Bestu kveðjur úr sveitinni fyrir norðan

|

föstudagur, júní 02, 2006

Hæhæ
Sumar og sól og gleði í hjörtum.... en burt með væmnina. Byrjaði að vinna í gær (1. júní) flottur dagur og fá loksins útborgað ;)
Og það fyrsta sem ég gerði var að skoða póst frá FEKI og þar er verið að bjóða upp á námskeið í Evrópsku tugnumálamöppunni. Vitið þið hvað það er?
En alla vega ætla ég að kíkja á það ásamt samkennara mínum þ.e. ég kenni 5.,6. og 7. bekk og hún 8. og uppúr!
Það er náttúrulega alveg í myndinni að hittast á þessum tíma. Kvöldin 13., 14., 15. júní væri hægt að hittast og spjalla eða eitthvað, þetta eru þriðjudagur, miðvikudagur og fimmtudagur, eftir giftinguna hennar Írisar er það ekki?
Hvað segið þið???? eruð þið kannski komnar í sumarfrí? Hér voru skólaslit 31. maí og bara 5 stafrsdagar eftir þar sem einn er tekinn í óvissuferð starfsmanna :) og bara gaman......

Bestu kveðjur frá einni í sveitinni

|