Enskukroppar

Þetta er nú meiri endemis lágdeyðan! Hysjum upp um okkur buxurnar og látum í okkur heyra!!!

fimmtudagur, febrúar 26, 2004

Segið mér eitthvað sniðugt. Hvernig gengur kennslan? Hafið þið lent í einhverju óvenjulegu og skemmtilegu í skólanum eða annars staðar?

Það er nóg að gera hjá mér. Allt að fara á fullt. Ég á að halda smá fyrirlestur í tímanum á laugardaginn, en það verður pís of keik...bara chapter presentation úr bókinni. Svo á ég að leiða umræður í Sociolinguistics 10.mars, hlakka ekki til þess. Sama dag er ég með chapter presentation í kúrs sem heitir Cultural foundations of education, þann fyrirlestur unnum við í pörum, þannig að það léttir heilmikið á, svo er félaginn minn amerísk kona sem talar mikið, sem léttir enn meira á mér! Síðasti fyrirlesturinn minn verður svo laugardaginn 13.mars, það er líka nokkurs konar chapter presentation. Þessir kennarar hér eru ekkert að hafa of mikið fyrir þvi að kenna manni efnið sjálfir, láta okkur sjá um að kynna það...sem er í rauninni allt í lagi þar sem maður er nú einu sinni í graduate námi og það í College of Education. Svo er það þorrablótið uppi í Wylie 13. mars líka. Það verður vonandi gaman.

Oh, við ætluðum að fara á NBA leik í San Antonio 5. mars, það var leikur Spurs gegn Dallas Mavericks (sem Jón Arnór Stefánsson spilar með), en það varð uppselt fyrir nokkru síðan. Reyndar er hægt að kaupa miða fyrir morðfjár á ebay, en ég held að við fátæku nemarnir sleppum því. Ég var ýkt spæld, var meira að segja búin að tala við kennarann minn um að fá að sleppa kannski tímanum 6. mars....úúúú...spæling!!! Ætluðum að fara með Jerod og Kate, en hann er frá San Antonio og er algjör Spurs fan. Kannski förum við samt þangað og gerum eitthvað annað skemmtilegt. En mig langaði svo ýkt að sjá Spurs gegn Mavericks, þó svo að Jón sé ekkert að spila, er á injury list....oh, nú er ég aftur orðin spæld!!!

Ðe Texas tuðer.

|

JEI!!! Það er allt að gerast hérna á þessari síðu!

Tuðarinn í Texas

|

föstudagur, febrúar 06, 2004

Takk fyrir það litla Texas gella :)
Hver er núna bestur, ég bara blogga 2 með viku millibili og það er aðeins ein(n) sem nær að blogga í millitíðinni.... Núna er maður búinn að fá sér borðtölvu og svo er að koma adsl á næstu dögum og í fæðingarorlofi þannig að maður ætti að fara að geta sett inn pistil svona sirka einu sinni á dag :) jeræt !!!
Það er þvílíkt fjör að eiga 2(3) stráka... og ekki legið í leti... reyndar er sá litli frekar latur og vær og góður og allt það. Maður veit bara ekki af honum og svo fór hann svo vel með mömmu sína í fæðingunni að hún finnur varla fyrir því að þarna hafi farið um barn fyrir 3 dögum :)
Jæja nóg af bulli í dag...... hér er hríð og skemmtilegheit, Pési uppi á heiði að bjargafólki (er semsagt í björgunarsveitinni) og skemmta sér... áhugamál karlmanna ! stór undarlegt fyrirbæri...
Bið að heilsa í bili.....
Norðanhríðakelling sem var með harðabumbu og núna með linan kepp :) Maður heldur nú varla öllum þessum kílóum ef maður á orðið 2 stráka... haldiði það?

|

fimmtudagur, febrúar 05, 2004

Elsku Ragga, innilega til hamingju með litla prinsinn. Heppin þú að eiga tvo litla prinsa!!!

Kossar og knús frá Texas.

|