Enskukroppar

Þetta er nú meiri endemis lágdeyðan! Hysjum upp um okkur buxurnar og látum í okkur heyra!!!

mánudagur, júlí 30, 2007

jæja


jæja dömur...vonandi áttuð þið góða helgi. Fóruð þið í útilegu? Sorrý að ég 'beilaði' á ykkur...
nú styttist óðum í óæðri enda sumarsins...afturendann og þar af leiðandi í skólabyrjun. Hvernig leggst nýtt skólaár í ykkur, hvort sem þið farið í skóla eða vinnið í skóla? Hvaða áfanga verðurðu að kenna í FS, Anna mín? Hvernig gengur undirbúningurinn...ég er persónulega búin að gera miklu miklu miklu minna í sumar en ég ætlaði mér, en það er því miður vanaleg niðurstaða sumarsins hjá mér. Samt reddast þetta alltaf einhvern veginn (hið alíslenska mottó stendur fyrir sínu). Endilega látið í ykkur heyra...mig langar að frétta af ykkur.

kv. Íris.

|

laugardagur, júlí 21, 2007

Jæja, jæja...

Hver ætlar eiginlega að koma í útilegu næstu helgi? Það er frekar fátt um svör hjá ykkur elskurnar mínar.

Ég fer að minnsta kosti eitthvað út á land, hver ætlar að koma með?

Kv,

AE

|

sunnudagur, júlí 15, 2007

TIL HAMINGJU.......


með brúðkaupið elsku Jóhanna og Berti. Vonandi var dagurinn ánægjulegur. Það fjölgar í hópi giftra enskukroppa, Ragga næst....svo þurfa Fanný og Anna að fara að vinna í sínum málum!

Vonandi sjáumst við sem fyrst.

Íris.

|

miðvikudagur, júlí 11, 2007

Halló krúslurnar mínar.

Fyrst af öllu. Íris mín, sá msg á msn og það leggst bara mjög vel í mig að fara á framhaldsskólastigið. Bara spennandi.

En yfir að öðru!

Hvernig lítur þetta út með útileguna okkar? Endilega svarið. Veit með Röggu og að Jóhanna kemst á laugardeginum en hvað með restina?

Látið í ykkur heyra... Fyrr en seinna...

|

þriðjudagur, júlí 03, 2007

Velkomin, Anna mín


í hóp framhaldsskólakennara...

kv. Íris.

|