Enskukroppar

Þetta er nú meiri endemis lágdeyðan! Hysjum upp um okkur buxurnar og látum í okkur heyra!!!

þriðjudagur, apríl 27, 2004

Íslendingar eru nú meiri heiðingjarnir...sjá hér

Hið 'trúaða' Bitch sem er farið að biðja bænirnar sínar til að sofna fyrr á kvöldin

|

fimmtudagur, apríl 22, 2004

hey ég komst inn.... reyndi ekkert aðeins um daginn og ekkert gekk :) en alla vega ákvað að reyna núna og komst þá inn, eins gott að skrifa þetta hjá sér... það eru svo mörg password og svoleiðis í gangi að ég man ekkert hvað á að vera hvar. Hér gengur lífið fyrir sér með látum og rólegheitum til skiptis... þeir sofa og vaka alltaf á sama tíma svo hér er mikil ró stundum og svo allt í hers höndum þar á milli .... það var einhver gaur hér um daginn sem hefur eitthvað með þennan hring á fingri mér að gera en hann er núna staddur á Portúgölskum togara á Reykjaneshrygg og sum okkar muna ekki einu sinni eftir honum, hann er buinn að vera svo lengi í burtu og hver veit hvenær hann kemur aftur...
hvernig stendur á því að ég fer alltaf að tala um Pésa hér?
hver dettur í það á þriðjudagskvöldi?
að hverju á ég að spyrja næst ?
hehe jæja verð nú að fara að hlunka mér í rúmið.
hver veit hvenær ég þarf að fara á fætur í fyrramálið? vaknaði klukkan 6 í morgun en ég er alveg hræðilega léleg í að fara að snemm að sofa... er núna búin með einn tuborg léttöl... er nú soddan hænuhaus og finn alveg á mér ... bannað að hlæja! og ætti að steinsofna innan fárra sekúnt/dna.
hvort er t eða d í sek?
svariði nú spurningunum mínum og veriðið duglegar að blogga :)
bestu kveðjur úr góða veðrinu fyrir norðan allt og ekkert!

|

þriðjudagur, apríl 20, 2004

Og elsku dúllurnar mínar, ekki hætta hérna inni, sérstaklega þegar síðan okkar er orðin svona sæt!

|

Þetta er rosalega flott hjá þér elsku Bitchið okkar.

Hvað er svo annars í fréttum? Er ekki á skallanum núna, að mér skuli hafa dottið í hug að fara að blogga um miðja nótt. Maður bara lifir og hrærist í þessu blessaða bloggi eins og bitchið, ég meina, mann dreymir þetta og allt. Híhíhí, maður er ekki alveg heilbrigður... Eða er maður svona rosalega heilbrigður?

Dagurinn í dag er búinn að vera klikkaður. Það hlýtur að vera veðrið. Missti stjórn á mér og hamraði svo rosalega í kennaraborðið að mér er enn illt í höndinni. Þetta er ekki heilbrigt. Væri sko alveg til í að kenna pínulitlum bekk, eða vera bara í fæðingarorlofi eins og Ragga skvís.

Fanný alveg að fara að flytja, alveg meiriháttar. Það er svo gaman þegar lífið tekur svona breytingum. OOOOhhhhhh

Later.

|