Aftur komin helgi, ótrúlegt en satt! En nú er forvitnin alveg að drepa mig, hvað er þetta mál með Samma? Og hverju ætlaðir þú að svara honum Ragga? Ég stend alveg á gati hérna...
Mér finnst það nú frekar leim af Ingva að tilkynna það ekki hér að Eysteinn og Hilda séu búin að eignast lítinn króa!!! Ég er rosa dugleg að kíkja á síðurnar ykkar, en mér finnst nú samt í lagi að skella hér inn einni og einni frétt þó hún sé líka á "persónulegu" síðunni!