Enskukroppar

Þetta er nú meiri endemis lágdeyðan! Hysjum upp um okkur buxurnar og látum í okkur heyra!!!

föstudagur, september 24, 2004

Hvað er málið með að láta heila viku líða á milli funda? Á ekkert að leysa þetta verkfall? Ég skiliddiggi alveg!

Íris.

|

mánudagur, september 20, 2004

HANG IN THERE!!! YOU CAN DO IT
Vacation 1 Vacation 2 Insane Club Me

Bestu kveðjur frá Texas!

|

sunnudagur, september 19, 2004

OMG

Elskurnar mínar, við erum komnar í verkfall.

Mér líður vægast sagt ekki vel í augnablikinu, kvíðahnútur í maganum á mér! Hvernig ætli að þetta fari allt saman?

Kvíðafull úr Kef.

|

Hæ hæ
Rosalega er þetta skrítið... að vita ekki hvað maður verður að gera á morgun!
En í allri þessari umræðu um laun. Hvað hafið þið verið með í mánaðarkaup síðan þið byrjuðuð?
Ég byrjaði með 163 ??? Iskr, var með umsjón með 12 barna bekk, um áramót hækkaði ég í 168??? og svo varð ég 27 ára í janúar svo ég hækkaði í 173??? 1. febrúar... er þetta nokkuð flókið hjá mér? sú sem að reiknar launin var ekki viss um hvernig hún ætti að reikna út sumarfríið mitt þar sem ég hafði verið í fæðingarorlofi og svoleiðis og svo þegar ég fékk útborgað núna þá er ég alltíeinu með 159??? sem er eitthvað undarlegt en ein sem ég talaði við (er ekki búin að tala við skólastjórann) fór eitthvað að tala um launapottinn og eitthvað sem ég skil ekki strax, hef ekki sett mig inní þetta fæ bara útborgað ;)
Baráttukveðjur af tanganum...

|

Jæja elskurnar mínar.
Hvernig er hljóðið í ykkur? Vitið þið almennilega hvað er í gangi, þ.e. hvað við eigum að gera og svoleiðis? Mér finnst ég vera í lausu lofti hérna. Hvernig verður eiginlega morgundagurinn okkar?
Mikið rosalega er þetta skrítið ástand...

AE

|

fimmtudagur, september 16, 2004

Hvað segiði mér af kennaradeilunni og samfélagsumræðum um hana? Látið allt flakka, mig langar að fylgjast með!!!

IRA

|

miðvikudagur, september 15, 2004

hæhæhæhæhæhæh
Nei ég er ekki búin að gefast upp, það er auðveld að taka út síðuna ef maður nennir þessu ekki lengur. Mig langaði bara til að sjá hverjir væru að skoða síðurnar.... og hverjir þyrðu að biðja um aðganga :) endilega bara senda mér póst og þið fáið aðgang eins og skot... eða þegar ég skoða póstinn minn næst, sem er reyndar oft....
well, ætla að fara og hanga í þessari 3ja tíma eyðu sem ég er í núna...
bið að heilsa öllum

Ragga

|

Ragga!

Ertu búin að læsa fyrir aðgang að síðunum hjá strákunum, eða ertu búin að gefast upp á þeim?

Verið nú duglega að skrifa eitthvað hér inn!!!

The Bíætsj!
Bitch

|

þriðjudagur, september 07, 2004

It's alive


Haldiði að ég hafi ekki barasta heyrt í huldukonunni áðan (þ.e. Jóhönnu). Hún unir sér vel í 'sveita'sælunni með sínum heittelskaða sem hún trúlofaðist í sumar!!!

|