takk takk takk
takk fyrir allar kveðjurnar, stelpur mínar...það var nú ekki ætlunin að stela senunni hér á þessari síðu, en ég get bara ekki að því gert hvað ég dreg að mér athyglina!!! En mig langar að segja ykkur svolítið...ég hitti eina góða vinkonu okkar í kvöld. Sú sem á heiðurinn að lykilorðinu okkar!!! Slúttið hjá sumarskóla FB var í kvöld og allir kennararnir sátu saman að snæðingi, smá ræður og dæmi, sem er ekki í frásögur færandi, nema hvað það vindur sér að mér kona og segir "hæ, Íris, manstu ekki eftir mér?" Ég verð að viðurkenna að ég kannaðist við hana en áttaði mig ekki á hver hún var. "Ég er Imelda, sem var með þér í enskunni". Hehe...ég bara alveg...hehe...já...alveg rétt...hehe...ég bara þekkti þig ekki.... svo áttum við smá samtal...stutt og laggott!!! Þá er maðurinn hennar að kenna við FB! Stundum er þetta land bara allt of lítið...

<< Home