Enskukroppar

Þetta er nú meiri endemis lágdeyðan! Hysjum upp um okkur buxurnar og látum í okkur heyra!!!

þriðjudagur, ágúst 26, 2003

Ó M Æ G O D !!!!! Haldiði ekki að hinn eini sanni BROWN sé kenndur í einum kúrsinum sem ég þarf að taka núna.....og ekki bara Brown heldur Teaching by Principles eftir Brown...hversu kúl er það?!?!?!?! Sem betur fer tók ég hana með mér, þannig að ég þarf ekki að kaupa hana hér. Auður Torfa sagði einmitt við mig í vor að það væri gott að taka Brown með því hann væri örugglega kenndur í flestum skólum...ég bara næ því varla hversu sniðugt mér finnst þetta allt saman.


(þetta er bloggið mitt, mitt, MITT...og enginn annar má skrifa hér....)

Íris iróníska!!

|

Hmmm...ég fékk lánað Haloscan kommentakerfið - vona að ykkur sé sama - ...ég ætlaði að setja upp komment frá www.enetation.co.uk, því þau eru helv...flott með fullt af smilies. Það kom alltaf upp Error...blablabla...do you wish to debug?...blablabla...þegar ég var búin að setja það inn, þannig að ég sleppti því bara. Svo ætlaði ég að setja inn Haloscan og þá var sign up síðan þeirra niðri....það er alltaf eitthvað að....

Íris!!!


P.S. Hefur enginn neitt að segja hérna, eða eru allir á kafi í kennslu...mér þætti gaman að heyra hvernig fyrstu dagarnir ganga hjá ykkur!

|

sunnudagur, ágúst 24, 2003

Það hlaut að koma að því...maður getur ekki hlaupist undan endalaust....ég er byrjuð að blogga....

Íris

|

laugardagur, ágúst 23, 2003

Jæja...allt gengur bara vel í Ameríkunni....Kalli er búinn að vera í orientation alla vikuna...ég er búin að vera að chilla á meðan. Fór reyndar á kynningu fyrir nýja graduate nemendur í gær, mér finnst alveg frábært hvað það er auðvelt að tala við Kanann, ansi skrafsamur......og auðvitað veit enginn neitt um Ísland...maður fær alls konar spurningar...hvaða tungumál talið þið?....er ekki kalt á Íslandi?....er bara snjór út um allt á Íslandi?.....Eru árstíðir á Íslandi?...þetta eru allt ósköp eðlilegar spurningar.....ég meina þetta land ber ekkert lítið villandi nafn....Ísland - Grænland, Grænland - Ísland.....bleh bleh bleh

Ég fékk ökuskírteinið mitt sent í pósti í gær...ó mæ god hvað myndin er hræðileg...maður var sko engan vegin tilbúinn þegar hún smellti af...djísús...sjón er sögu ríkari...dálítið óskýrt...

Íris

|

mánudagur, ágúst 11, 2003

Frábært að allt gekk svona vel Íris mín.

Ég er núna að hlusta á Ron Davis, rosalega fróðlegt. Það mættu oftar vera svona góðar ráðstefnur eins og þær eru búnar að vera síðan fyrir helgi.

En hvað er eiginlega að síðunni okkar? Þoli ekki að komast ekki niður hana alla. Kann einhver ráð til þess að hún opnist öll? Þetta er að gera mig brjálaða!

ARRRRRRRRRRRRRRRRRRRG...

Anna...

|

mánudagur, ágúst 04, 2003

Jæja, kropparnir mínir.
Nú er ég komin til Dallas. Ferðin gekk vel, framar vonum reyndar, því við erum með svo mikinn farangur. Við erum með 5 stórar ferðatöskur, þrjár litlar (í handfararngur) og golfsett...eina auka tösku og golfsett sem við ætluðum bara að borga yfirvigt af, því það er í raun dýrara að senda með pósti. Þegar við tékkuðum okkur inn í Leifsstöð þurftum við að borga 5000 kall í yfirvigt, sem er ekki mikið. Svo komum við til Minneapolis og það gekk snurðulaust að komast í gegnum eftirlitið, erum með fullt af pappírum sem vour stimplaðir hægri og vinstri. Svo fórum við á hótelið með rútu af flugvellinum, það var mjög fínt, hótelið er mjög nálægt honum og Mall of America. Þetta var geðveikt hótel, greinilega rekið af indjánum því það var fullt af indjánadóti þarna inni, ég held að Ragga og Jóhanna hefðu haft gaman af því að sjá þetta. Við vöknuðum hálf fimm um morguninn til að hafa nægan tíma fyrir flugið, að burðast með allan farangurinn. Þetta gekk allt eins og í sögu, hefði aldrei trúað því. Svo tóku kunningjar okkar, Trey og Shelley, á móti okkur í Dallas, (þau þurftu að koma á Hummer sem nágranni þeirra á til að koma öllum töskunum fyrir, því þau eiga bara litla sportbíla sjálf og hefðu aldrei getað tekið allt draslið). Nú erum við enn hjá þeim og munum fara til College Station þegar við finnum okkur bíl. Veðrið er búið að vera heitt. Það var ekki svo slæmt í Minneapolis, rétt undir 30 gráðum, enda farið að líða á kvöldið þegar við vorum þar. Á laugardeginum var killer heitt í Dallas, yfir 40 gráður, við vorum að stikna. Það var rosa fínt í gær, um 30 gráður og skýjað, fínt fyrir frónbúana........Trey og Shelley héldu grillveislu á laugardagskvöldið, þau buðu fullt af vinum hingað og við borðuðum í garðinum, svaka stuð. Við komum með SS pylsur og pylsusinnep fyrir Trey og Shelley, þau grilluðu pylsurnar fyrir amerísku vinina og þeim fannst þetta bestu pylsur sem þau höfðu smakkað, og sinnepið fannst þeim líka geðveikt...spurning um að fara að flytja þær inn!!!

Jæja, þetta er nóg í bili....I'm going carshopping today....heyrumst síðar og hafið það sem best.

Kveðja, Íris

|