Enskukroppar

Þetta er nú meiri endemis lágdeyðan! Hysjum upp um okkur buxurnar og látum í okkur heyra!!!

fimmtudagur, júlí 29, 2004

Jæja, þriðjudagur eða kvöld virðist vera málið.  Endilega látið í ykkur heyra.

Anna fyrir Röggu beib...

|

miðvikudagur, júlí 28, 2004

Jæja, var bara að prófa aðganginn.  Komst sem sagt inn.  Meira seinna...

Anna...

|

OK! Nú er búið að bóka mig...


...á þriðjudagskvöldið. Þannig að þriðjudagurinn, miðvikudagurinn og miðvikudagskvöldið (ekki seint) er laust. Hvenær hentar ykkur best að hittast?

Íris

|

miðvikudagur, júlí 07, 2004

HÆ hæ!
Jæja íris ertu þá komin heim? :)
Hlakka til að sjá þig og alla(r) hina(r). Ég var óvænt á leiðinni til Danmerkur 21. júli og til baka 4. ágúst en sú ferð datt niður og verð ég því heima á klakanum í allt sumar.
Við bara VERÐUM að hittast.
En hvar getum við verið? Hver vill hýsa okkur?
Ég verð með barnaafmæli 18. og/eða 19. júli þar sem "litli" minn verður 2ja ára og svo bara er ég til í að skella mér í bæinn og hitta ykkur.
Látið nú í ykkur heyra og segið ykkar álit....
Vita Ingvi, Edda, Fanný og Lára af þessu bloggi? ...... hvað þá Jóhanna?
Kveðja Ragga

|

fimmtudagur, júlí 01, 2004

Jæja elskurnar mínar. Þá fer Íris að koma hingað til okkar aftur. Það verður svo gaman að sjá hana, spjalla og alla hina um leið. Hvernig líst ykkur á að hittast eftir um tvær vikur? Ég kem heim um 18. júlí eða 20. og þá verður maður í fíling að hitta alla og gera eitthvað skemmtilegt. Hvernig líst ykkur á það? Endilega látið í ykkur heyra og við plönum eitthvað skemmtilegt. Eins var hinn góði ensku kennarinn okkar í KHÍ, hann Samuel búinn að senda mér mail um að hann væri til í að hitta okkur og fá smá update hvernig gengur hjá okkur. Verðum í bandi...

Anna...

|