Enskukroppar

Þetta er nú meiri endemis lágdeyðan! Hysjum upp um okkur buxurnar og látum í okkur heyra!!!

sunnudagur, desember 09, 2007

Bó og fleira


Við Jóhanna skelltum okkur á jólagesti Bó Hall í kvöld, aldeilis fínir tónleikar það. Þessi klassísku lög eru samt alltaf best og koma manni rakleiðis í jólaskapið.
Við hittumst samt bara fyrir einskæra tilviljun á klósettinu...ekki bókstaflega á klósettinu, heldur við vaskana. Vorum að spá í að reyna enn einu sinni að koma saman, þar sem Ragga hlýtur að koma í ómenninguna fyrir jólin. Hvað segiði?

Íris.

|