jæja
jæja dömur...vonandi áttuð þið góða helgi. Fóruð þið í útilegu? Sorrý að ég 'beilaði' á ykkur...
nú styttist óðum í óæðri enda sumarsins...afturendann og þar af leiðandi í skólabyrjun. Hvernig leggst nýtt skólaár í ykkur, hvort sem þið farið í skóla eða vinnið í skóla? Hvaða áfanga verðurðu að kenna í FS, Anna mín? Hvernig gengur undirbúningurinn...ég er persónulega búin að gera miklu miklu miklu minna í sumar en ég ætlaði mér, en það er því miður vanaleg niðurstaða sumarsins hjá mér. Samt reddast þetta alltaf einhvern veginn (hið alíslenska mottó stendur fyrir sínu). Endilega látið í ykkur heyra...mig langar að frétta af ykkur.
kv. Íris.

<< Home