Enskukroppar

Þetta er nú meiri endemis lágdeyðan! Hysjum upp um okkur buxurnar og látum í okkur heyra!!!

föstudagur, janúar 27, 2006

Hún Ragga okkar á afmæli í dag.

Mínar bestu kveðjur til þín!

Anna.

|

fimmtudagur, janúar 19, 2006

Mikið leiðist mér ofboðslega.

Hef mig ekki í að gera neitt. Íbúðin (nýja) enn í rusli, hef ekki litið í bók alla vikuna, jú kannski til að opna hana og loka henni aftur. Á eftir að gera 2 verkefni sem átti að skila í vikunni, finn bara enga orku til að gera þetta.

Ástæðan: Veikt barn.

Mikið tekur það á að vera alveg fastur inni í nokkra daga. En skvísan fer í skólann á morgun og ég ætla að skella mér eitthvert og finna mér stað til að lesa og gera þessi verkefni.

Langar á djamm á föstudaginn. Eru þið til?

Ætla annars að læra alla helgina, en væri alveg til í að eyða laugardeginum í þynnku! Sem sagt, vantar einhvern með mér.

SKÁL!

|

fimmtudagur, janúar 12, 2006

Hí, hí...

Setti inn haloscan aftur. Líkar mun betur við það en það sem blogger notar.

En mikið var ég í leiðinlegum tíma í dag. Var algjörlega "zoned out" og tíminn ekki hálfnaður. En svona er þetta víst. Maður verður bara að láta sig hafa þetta.

Aftur á móti er ég á þeim tímamótum að mér finnst ég hafa misst af svo miklu... Það er alltaf verið að minnast á fyrri áfanga þar sem hitt og þetta kom fram. Vona að það hafi ekki áhrif á mína framistöðu, annars væri deildin ekki að velja þessa ákveðnu áfanga fyrir mann.

Jæja, House að byrja,

See ya!

|

fimmtudagur, janúar 05, 2006

Jæja jæja jæja.
Sælt verið fólkið og gleðilegt nýtt ár :)
Langar að byrja á því að óska Jóhönnu til lukku með litla frumburðinn :)
Gaman að sjá hvað þið eruð búnar að taka við ykkur í skrifum hingað inn stúlkur mínar. Núna ætla ég að taka ykkur til fyrirmyndar og gera hið sama.. og skrifa oftar hingað :) Líst ykkur ekki vel á það?!
Verður nú að viðurkennast að maður hefur nú lítið séð ykkur eftir að við hættum í Kennó.. og finnst mér við algjörlega þurfa að bæta það. Er ekki komin tími á planaðan hitting..? Auðvitað er erfitt að hittast þegar allir eru í sínum hornum, en við hljótum að geta fundið einhvern tíma!
Anyways.. langaði bara að smella einni kveðju hingað til.. og láta ykkur vita að ég fylgist með þessari síðu reglulega.. þó lítið hafi gerst á henni :)
Látið í ykkur heyra :)

Kveðja
Fanný

|

miðvikudagur, janúar 04, 2006

Jæja, kom haloscan aftur upp. Veit ekki af hverju síðan breyttist úr grænu yfir í bleikt, er ekki alveg sátt við þetta sko.

En algjör snilld hjá haloscan; núna setja þeir þetta inn á bloggið fyrir mann þannig að þetta er ekkert mál. Sem betur fer.

Endilega virkjum þetta blogg aftur...

Anna...

|

commenting and trackback have been added to this blog.

|

Okei, veit ekki hvað gerðist. Var aðeins að laga til og bloggið bara breyttist. Hmmm... Núna þarf maður að finna alla linka, endilega skellið þeim inn... Og finna haloscanið aftur. Ætla að reyna að rifja upp í sambandi við það.
Bestu kveðjur,

Anna...

|

mánudagur, janúar 02, 2006

HAPPY NEW YEAR MY FRIENDS...

My best to you all.

|