Enskukroppar

Þetta er nú meiri endemis lágdeyðan! Hysjum upp um okkur buxurnar og látum í okkur heyra!!!

fimmtudagur, janúar 19, 2006

Mikið leiðist mér ofboðslega.

Hef mig ekki í að gera neitt. Íbúðin (nýja) enn í rusli, hef ekki litið í bók alla vikuna, jú kannski til að opna hana og loka henni aftur. Á eftir að gera 2 verkefni sem átti að skila í vikunni, finn bara enga orku til að gera þetta.

Ástæðan: Veikt barn.

Mikið tekur það á að vera alveg fastur inni í nokkra daga. En skvísan fer í skólann á morgun og ég ætla að skella mér eitthvert og finna mér stað til að lesa og gera þessi verkefni.

Langar á djamm á föstudaginn. Eru þið til?

Ætla annars að læra alla helgina, en væri alveg til í að eyða laugardeginum í þynnku! Sem sagt, vantar einhvern með mér.

SKÁL!

|