Enskukroppar

Þetta er nú meiri endemis lágdeyðan! Hysjum upp um okkur buxurnar og látum í okkur heyra!!!

sunnudagur, september 19, 2004

Hæ hæ
Rosalega er þetta skrítið... að vita ekki hvað maður verður að gera á morgun!
En í allri þessari umræðu um laun. Hvað hafið þið verið með í mánaðarkaup síðan þið byrjuðuð?
Ég byrjaði með 163 ??? Iskr, var með umsjón með 12 barna bekk, um áramót hækkaði ég í 168??? og svo varð ég 27 ára í janúar svo ég hækkaði í 173??? 1. febrúar... er þetta nokkuð flókið hjá mér? sú sem að reiknar launin var ekki viss um hvernig hún ætti að reikna út sumarfríið mitt þar sem ég hafði verið í fæðingarorlofi og svoleiðis og svo þegar ég fékk útborgað núna þá er ég alltíeinu með 159??? sem er eitthvað undarlegt en ein sem ég talaði við (er ekki búin að tala við skólastjórann) fór eitthvað að tala um launapottinn og eitthvað sem ég skil ekki strax, hef ekki sett mig inní þetta fæ bara útborgað ;)
Baráttukveðjur af tanganum...

|