Enskukroppar

Þetta er nú meiri endemis lágdeyðan! Hysjum upp um okkur buxurnar og látum í okkur heyra!!!

fimmtudagur, febrúar 26, 2004

Segið mér eitthvað sniðugt. Hvernig gengur kennslan? Hafið þið lent í einhverju óvenjulegu og skemmtilegu í skólanum eða annars staðar?

Það er nóg að gera hjá mér. Allt að fara á fullt. Ég á að halda smá fyrirlestur í tímanum á laugardaginn, en það verður pís of keik...bara chapter presentation úr bókinni. Svo á ég að leiða umræður í Sociolinguistics 10.mars, hlakka ekki til þess. Sama dag er ég með chapter presentation í kúrs sem heitir Cultural foundations of education, þann fyrirlestur unnum við í pörum, þannig að það léttir heilmikið á, svo er félaginn minn amerísk kona sem talar mikið, sem léttir enn meira á mér! Síðasti fyrirlesturinn minn verður svo laugardaginn 13.mars, það er líka nokkurs konar chapter presentation. Þessir kennarar hér eru ekkert að hafa of mikið fyrir þvi að kenna manni efnið sjálfir, láta okkur sjá um að kynna það...sem er í rauninni allt í lagi þar sem maður er nú einu sinni í graduate námi og það í College of Education. Svo er það þorrablótið uppi í Wylie 13. mars líka. Það verður vonandi gaman.

Oh, við ætluðum að fara á NBA leik í San Antonio 5. mars, það var leikur Spurs gegn Dallas Mavericks (sem Jón Arnór Stefánsson spilar með), en það varð uppselt fyrir nokkru síðan. Reyndar er hægt að kaupa miða fyrir morðfjár á ebay, en ég held að við fátæku nemarnir sleppum því. Ég var ýkt spæld, var meira að segja búin að tala við kennarann minn um að fá að sleppa kannski tímanum 6. mars....úúúú...spæling!!! Ætluðum að fara með Jerod og Kate, en hann er frá San Antonio og er algjör Spurs fan. Kannski förum við samt þangað og gerum eitthvað annað skemmtilegt. En mig langaði svo ýkt að sjá Spurs gegn Mavericks, þó svo að Jón sé ekkert að spila, er á injury list....oh, nú er ég aftur orðin spæld!!!

Ðe Texas tuðer.

|