Enskukroppar

Þetta er nú meiri endemis lágdeyðan! Hysjum upp um okkur buxurnar og látum í okkur heyra!!!

miðvikudagur, mars 15, 2006

Uss, uss.

Herinn bara að fara af landinu... Hvernig ætli að þetta fari allt saman? Ég er búin að lesa einhverjar umræður um þetta og flestum líst bara vel á! Ég held að fólk þurfi að spá aðeins í þetta áður en það fagnar, ég held að meirihluti þjóðarinnar viti ekki hversu mikinn pening USA setur í flugreksturinn yfir árið...

Ég er svo ans... fúl út í þennan blessaðan rekstur, get samt sem áður ekki verið ánægð með að þeir skuli vera að fara... Þetta verður rosalegt fyrir okkur öll... Spáið bara í með björgunarþyrlurnar. Eins gott að maður lendi ekki í alvarlegu slysi eftir september... Ég treysti okkar fólki alveg 150% þá treysti ég ekki tækjabúnaði okkar...

Hvað hafið þið um málið að segja?


Já, og takk fyrir afmæliskveðjurnar um daginn! :)

|