Enskukroppar

Þetta er nú meiri endemis lágdeyðan! Hysjum upp um okkur buxurnar og látum í okkur heyra!!!

fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Það er náttúrlega nauðsynlegt að færa lestrarbækurnar til nútímans svo börnin finni sig í þeim:

Bekkjarafmælið
Ósk Ýr gekk rösklega með Brand Ara í afmælið til Egils Daða því hún var að verða of sein að sækja Leif Arnar og Loft Stein í leikskólann. Borgar Vörður, pabbi Egils Daða, tók á móti þeim. Þarna voru Lind Ýr, Líf Vera, Sól Hlíf, Ævar Eiður og Hreinn Bolli. Erlendur Hreimur kom blaðskellandi innan úr stofunni og vinkonurnar Vísa Skuld og Dís Ester fast á hæla honum. Mýra Þoka lét lítið fyrir sér fara úti í horni. Innan úr herbergi Egils Daða bárust ógurlegir skruðningar * "#%=&#$&/(=!z#$!/!=! Línus Gauti, Barði Vagn og Mist Eik voru greinilega mætt. En hvar var Ríta Lín? Fyrir utan var Sædís Líf í rauðum fólksvagni. Hægt og sígandi nálgaðist Jökla Þoka eftir stígnum. Hún var orðin alltof sein í afmælið.


p.s. Þetta eru nöfn á núlifandi íslendingum!!

|