Hæ elskurnar mínar og takk fyrir allar fallegu kveðjurnar ykkar.
Lífið er rosalega erfitt núna. Er að sættast við það að ég er dálítið mikið þunglynd þessa dagana. Og sérstaklega þegar ég er ein... En að minnsta kosti er hægt að gera eitthvað í því þegar maður veit af því.
Og þó ég sé flutt út á land (hehe) þá er nú auðvelt að skreppa til Rek, þarf nú að gera það reglulega hér eftir. Aðal vandamálið er að koma elskunni minni fyrir einhvers staðar. En það reddast örugglega þegar það er komið í ljós hvenær við ætlum að hittast.
En þið eruð nú alltaf velkomnar hingað til mín í Kef í 'nýja' húsið mitt. Þá fer ég kannski að gera eitthvað meira hérna inni ef ég á von á einhverjum! :)
Annars finnst mér eins og ég sé að drukkna í verkefnum þessa dagana. Skólinn er bara á hold, þarf að fara að skila þessum verkefnum, ekki hægt að slóra endalaust. Svo er rosaleg vinna þegar einhver fellur frá, allt tekur tíma t.d. við það að segja upp ruv áskrift (ekki ætla ég að borga 2), síminn, stöð 2, mogginn og svo allt hitt, þetta virðist vera endalaus listi, en því miður reyni ég að forðast hann eins og heitan eldinn, er ekki alveg að meðtaka þetta allt og vil ekki trúa þessu. 'Tár í augum'
Takk fyrir að lesa rausið mitt, alltaf gott að skrifa sig út úr hlutunum...
Knús frá Kef.

<< Home