hæhæ
Jú jú mikið rétt! Litla prinsessan fæddist 29. apríl, þremur vikum fyrir áætlun... eða eins og hægt var að áætla þar sem við vissum eitthvað seint að hún væri á leiðinni var ekki hægt að sjá út almennilega hvenær von væri á henni... :) En hún var nú samt ekkert lítil og létt eða um 3660g (14,5 merkur)og 53 cm! Öllum heilsast vel og meira að segja pabbanum sem missti af öllu þar sem hann þurfti að keyra frá Seyðisfirði og var ekki nógu fljótur (þykir fréttnæmt hjá þeim sem muna eftir hans fyrstu mánuðum eftir bílpróf)!!! Þar sem hún km svona snemma vorum við náttúrulega ekki flutt, áttum að fá húsið 1. júní en fólkið dreif sig út helgina eftir að hún fæddist og svo þurfti Pési að ganga frá öllu í vinnunni svo við erum ennþá í 84 m2 íbúðinni og erum að drukna. Tíminn var notaður og parketið pússað svo við ættum að geta farið að flytja fljótlega eftir (hvítasunnu)helgina og vá hvað ég hlakka til.... Nú er bara næst á dagskránni að vera í orlofi allan næsta vetur, stunda barnauppeldi og slaka á, njóta þess að vera í "nýju" húsi og fá sér stærri bíl því Subaruinn verður að engu þegar ég og mín fjölskylda erum á ferðinni :) Hægt er að kíkja á gripinn og skilja eftir kveðju hér.
En jæja, nóg frá mér í bili.
Heyrumst!

<< Home