Á þessarri slóð er allt sem við þurfum að vita. En hérna er copy/paste:
Reglur um mat á B.Ed.-prófi frá K.H.Í.
við Hugvísindadeild Háskóla Íslands.
Nemandi með B.Ed.-próf af grunnskólabraut frá Kennaraháskóla Íslands og dönsku, ensku, íslensku eða sagnfræði sem kjörsvið getur fengið nám sitt metið inn í samsvarandi aðalgrein við heimspekideild sem hér segir:
1. Forkröfur fyrir aðgang að meistaranámi (M.Paed./M.A.)
Nemandinn fær metnar 20e af kjörsviði og 10e af öðru námi (valnámskeið), samtals 30e, sem jafngildi náms í aðalgreininni á B.A.-stigi. Til viðbótar þarf nemandinn að taka 30e í aðalgreininni á B.A.-stigi eftir nánari ákvörðun greinar eða skorar. Að þessu námi loknu getur nemandinn sótt um aðgang að meistaranámi (M.Paed.- eða M.A.) í aðalgreininni. Nemandinn fær ekki formlegt B.A.-próf, heldur telst hann með viðbótarnámi sínu hafa uppfyllt skilyrði til að geta sótt um að innritast í meistaranám í aðalgrein sinni.
2. Mat á B.Ed.-námi inn í nám í aðalgrein til B.A.-prófs
a) Aðalgrein til 90e. – Nemandinn fær metnar 20e af kjörsviði og 10e af öðru námi (valnámskeið), samtals 30e, sem jafngildi náms í aðalgreininni á B.A.-stigi. Til viðbótar þarf nemandinn að taka 60e í aðalgreininni á B.A.-stigi eftir nánari ákvörðun greinar eða skorar. Að þessu námi loknu getur nemandinn útskrifast formlega með B.A-próf og hefur þá ígildi B.A.-prófs í aðalgrein til 90e.
b) Aðalgrein til 60e. – Nemandinn fær metnar 20e af kjörsviði og 10e af öðru námi (valnámskeið), samtals 30e, sem jafngildi náms í aðalgreininni á B.A.-stigi. Til viðbótar þarf nemandinn að taka 30e í aðalgreininni á B.A.-stigi eftir nánari ákvörðun greinar eða skorar. Að auki tekur nemandinn aðra grein að eigin vali sem aukagrein til 30e. Að þessu námi loknu getur nemandinn útskrifast formlega með B.A-próf og hefur þá ígildi B.A.-prófs í aðalgrein til 60e ásamt 30e aukagrein.
3. Mat á B.Ed.-námi inn í nám í aukagrein til B.A.-prófs
Kjósi nemandinn að stunda nám í annarri grein en þeirri sem var kjörsvið hans í B.Ed.-náminu getur hann sótt um að fá metnar 20e af kjörsviði upp í aukagrein til 30e en þarf að taka a.m.k.10e til viðbótar í aukagreininni samkvæmt nánari ákvörðun greinar eða skorar.
Hafi nemandinn lokið öðrum námskeiðum eða fleiri valnámskeiðum sem hann telur að séu sambærileg við námskeið við heimspekideild getur hann einnig sótt um að fá þau metin.
Ofangreint eru aðalreglur fyrir heimspekideild, en einstökum skorum er heimilt að setja sérreglur um einstök atriði.
Reglur á pdf sniði.
Eyðublað fyrir umsókn um mat á B.Ed. námi
Með bestu kveðju,
Verðandi háskólamær...

<< Home