Enskukroppar

Þetta er nú meiri endemis lágdeyðan! Hysjum upp um okkur buxurnar og látum í okkur heyra!!!

föstudagur, janúar 30, 2004

Mér finnst að krakkar eigi að læra að framkvæma rannsóknir í grunnskóla, og þá meina ég alvöru rannsóknir. Það væri sniðugt að kenna það í unglingadeild. Þar myndu þeir læra að undirbúa rannsóknir, framkvæma þær og hvernig á að skrifa rannsóknarritgerð...ég kann þetta nefnilega ekki!!! Kennslan í þessu var ekki nógu góð í Kennó...Aðferðafræði rannsókna...einn kúrs...kommon. Þetta er heilmikill þáttur í framhaldsnámi, ekki bara í kennaranámi, heldur flestu öðru námi. Ég er að taka mastersgráðu og ég hef aldrei skrifað alvöru rannsóknarritgerð...há leim is ðat. Rannsóknir eru meira og minna undirstaðan í doktorsnámi...af hverju er ekki hægt að kenna þetta strax og þróa í grunnskóla og framhaldsskóla....?

Íris

|