Enskukroppar

Þetta er nú meiri endemis lágdeyðan! Hysjum upp um okkur buxurnar og látum í okkur heyra!!!

þriðjudagur, júlí 01, 2003

Hæ, hæ, og hó, hó... Hvað er að frétta? Vil byrja á því að þakka fyrir mig Íris mín, þetta var rosalega flott hjá þér og Kalla og ég skemmti mér alveg konunglega... TIL HAMINGJU MEÐ TRÚLOFUNINA... Þetta er æðislegt.

Vá, finnst ykkur ekki skrítið að júlí sé byrjaður? Það liggur við að sumarið sé að verða búið. Þetta líður allt of hratt. Áður en maður veit af er maður byrjaður í kennslu á fullu og veit ekki hvað snýr upp né niður... HAHAHAHA smá grín. En án gríns þá er ég farin að hugsa mikið um það hvernig þetta verður 18. ágúst. Púff, alltaf erfitt að byrja á einhverju nýju...

Anna...

|